Breytingar á forystu ASÍ og miðstjórn

Á fundum miðstjórnar ASÍ 1. og 5. apríl 2020 voru gerðar eftirfarandi breytingar á forystu ASÍ og miðstjórn sambandsins.

 
1. varaforseti ASÍ er Kristján Þórður Snæbjarnarson, Rafiðnarsambandi Íslands
2. varaforseti ASÍ er Sólveig Anna Jónsdóttir, Eflingu

Úr miðstjórn fara:
Vilhjálmur Birgisson, Verkalýðsfélagi Akraness (hefur sagt af sér sem 1. varaforseti ASÍ)
Harpa Sævarsdóttir, VR (hefur sagt sig úr miðstjórn ASÍ)

Í miðstjórn koma sem aðalmenn:
Anna Marjankowska, Eflingu
Bjarni Þór Sigurðsson, VR
 
Nýr formaður jafnréttis- og vinnumarkaðsnefndar ASÍ í stað Hörpu Sævarsdóttur er Kristín M. Björnsdóttir, VR.