Frá og með 1. febrúar 2026 breytist opnunartími á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð. Opið verður alla virka daga frá kl. 10:00 til 16:00 nema föstudaga þegar opið verður frá kl. 10:00 til 14:00.
Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.
Vert er að benda á að á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.
Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is