Af óviðráðanlegum orsökum verður skrifstofa félagsins í Fjallabyggð opin milli kl. 9:00 og 13:00 alla virka daga í júlí.
Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.
Á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.
Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is