How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Frá og með 1. janúar 2027 breytast reglur Landsmenntar, Ríkismenntar, Sjómenntar og Sveitamenntar um styrki vegna tungumálanáms. Eftir það verða aðeins veittir styrkir þegar námið fer fram í framhaldsskóla, háskóla eða hjá fræðsluaðila sem er með viðurkenningu stjórnvalda. Þar undir falla til dæmis símenntunarmiðstöðvar. Hér er Listi yfir viðurkennda fræðsluaðila
Með breytingunni verða reglur sjóðanna einfaldari og skýrari. Sömu grunnkröfur munu gilda um tungumálanám og aðra starfsmenntun sem sjóðirnir styrkja.
Ef námið fer fram á árinu 2026 og reikningurinn er með gjalddaga á árinu, er umsóknin afgreidd eftir núgildandi reglum. Ef nám sem fer fram árið 2027 uppfyllir ekki nýju skilyrðin er umsókn hafnað, jafnvel þó að reikningurinn hafi verið gefinn út fyrir áramót.