Búið að úthluta aftur

Í gær var úthlutað aftur lausum orlofskostum næsta sumar, í þetta sinn var verið að úthluta til félagsmanna sem fengu neitun í fyrri úthlutun. Þeir sem fengu úthlutað í gær hafa nú tíma til þriðjudagsins 18. maí til að greiða. 

Einfaldast er að ganga frá greiðslu rafrænt á orlofsvef félagsins.

Síminn á skrifstofum félagsins er 460 3600.

Fimmtudaginn 20. maí kl. 10:00 verður opnað á netinu fyrir orlofskosti sem enn verða lausir. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Sjá nánar á Orlofsvef félagsins