Byggingavöruverslanir - verðkönnun

Verð í Bauhaus var oftast lægst í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ  í Bauhaus, Byko og Húsasmiðjunni þann 26. febrúar. Í samanburðinum var verð skoðað á 203 vörum en aðeins sex vörur voru fáanlegar í öllum þremur verslununum. Bauhaus var með lægsta verðið á 140 vörum, Byko á 48 og Húsasmiðjan á 20.  

Mismargar vörur voru frá hverri verslun í samanburðinum, flestar í Bauhaus, 182, 164 í Byko og 66 í Húsasmiðjunni og er því hjálplegt að skoða þessar tölur sem hlutfall af fjölda vara úr hverri búð í samanburðinum. 

Sjá nánar hér