Vert er að minna félagsmenn á að nú stendur yfir skráning í dagsferð eldri félagsmanna. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð og í síma 460 3600.
Verð kr. 10.000. Greiða þarf fyrir ferðina í síðasta lagi föstudaginn 20. júní. Hægt er að hringja í síma 460 3600 til að fá upplýsingar með að millifæra.
Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin þriðjudaginn 24. júní 2025.
Lagt verður af stað frá Akureyri kl. 9:00 og ekið til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar þar sem Síldarminjasafnið verður skoðað.
Þaðan verður farið í Skagafjörð; Hofsós, Hóla í Hjaltadal og Sauðárkrók.
Farið verður um Öxnadalsheiði á heimleiðinni.
Snæddur verður hádegisverður á Siglufirði og boðið verður upp á kaffi í Skagafirði.