Dagsferð eldri félagsmanna 2025 - lokadagur til að borga er 20. júní

Vert er að minna á að föstudagurinn 20. júní nk. er síðasti dagur til að borga dagsferð fyrir eldri félaga sem verður farið í þriðjudaginn 24. júní nk.

Ferðin kostar kr. 10.000 á mann.

Einfaldast er að millifæra upphæðina inn á bankareikning 0565-14-402540, kennitala 570599-2599 og senda staðfestingu á ein@ein.is.

Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin þriðjudaginn 24. júní 2025.

Lagt verður af stað frá Akureyri kl. 9:00 og ekið til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar þar sem Síldarminjasafnið verður skoðað. 

Þaðan verður farið í Skagafjörð; Hofsós, Hóla í Hjaltadal og Sauðárkrók.

Farið verður um Öxnadalsheiði á heimleiðinni.

Snæddur verður hádegisverður á Siglufirði og boðið verður upp á kaffi í Skagafirði.