Desemberuppbótin 2021

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Við starfslok á að gera upp áunna desemberuppbót.

Upphæð desemberuppbótar samkvæmt kjarasamningi við ríkið og samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði er kr. 96.000, miðað við 100% starfshlutfall. Starfsmenn hjá ríkinu eiga að fá desemberuppbót greidda 1. desember og starfsmenn á almennum vinnumarkaði eigi síðar en 15. desember. 

Upphæð desemberuppbótar samkvæmt kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga er kr. 121.700, miðað við 100% starfshlutfall. Starfsmenn sveitarfélaga eiga að fá sína desemberuppbót greidda 1. desember, skv. kjarasamningi. 

Hér má finna nánari upplýsingar um desemberuppbótin, m.a. töflur sem sýna upphæð desemberuppbótar miðað við starfshlutfall og starfstíma.