Desemberuppbót 2023

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Upphæðin ákvarðast af starfstíma og starfshlutfalli. Uppbótin greiðist sjálfstætt og án tengsla við laun.

Við hvetjum félagsmenn okkar til að fylgjast með hvort desemberuppbótin verði greidd.

Samtök atvinnulífsins – Almenni markaðurinn

  • Kr. 103.000.
  • Greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert.

Ríkið

  • Kr. 103.000.
  • Greiðist 1. desember ár hvert.

Sveitarfélög

  • Kr. 131.000
  • Greiðist eigi síðar en 1. desember ár hvert.

Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Við starfslok á að gera upp áunna desemberuppbót.

Hér má finna nánari upplýsingar um desemberuppbótin, m.a. töflur sem sýna upphæð desemberuppbótar miðað við starfshlutfall og starfstíma.