Desemberuppbót til atvinnuleitenda

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, undirritaði fyrr í nóvember reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 99.389 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þau sem staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2023 og hafa verið að fullu tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2023. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu 2023 og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 24.847 krónum.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum heldur nemur í öllum tilvikum sex prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.963 krónum með hverju barni.

Vinnumálastofnun mun greiða desemberuppbót til atvinnuleitenda eigi síðar en 15. desember nk.

Smelltu hér til að nálgast nánari upplýsingar um desemberuppbót