Dyravarðanámskeið - Síðasti skráningardagur er á morgun

Vert er að minna á að síðasti mögulegi skráningardagur á dyravarðanámskeið sem hefst í SÍMEY í næstu viku er á morgun, fimmtudaginn 4. apríl.

SÍMEY, í samvinnu við Einingu-Iðju og lögregluna á norðurlandi, verður með Dyravarðanámskeið sem hefst 8. apríl nk.

Athugið að námskeiðið er opið öllum og hvetur SÍMEY alla til að kanna rétt sinn á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi.

Félagsmenn Einingar- Iðju geta átt rétt á 90% til 100% endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá starfsmenntasjóðum
Hægt er að hafa samband við Eining-Iðju og kanna sinn rétt.

Nánari upplýsingar og skráning hér