Eining-Iðja styrkir Velferðarsjóðinn á Eyjafjarðarsvæðinu

„Stjórn Velferðarsjóðs á Eyjafjarðarsvæðinu vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra …
„Stjórn Velferðarsjóðs á Eyjafjarðarsvæðinu vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem leggja starfinu lið. Án þessa mikla velvilja í samfélaginu væri ekki hægt að styrkja efnaminni heimili á svæðinu með þeim hætti sem nú er gert. Ykkar stuðningur er ómetanlegur.“

Á fundi aðalstjórnar Einingar-Iðju þann 17. nóvember sl. var samþykkt að veita Velferðarsjóðnum á Eyjafjarðarsvæðinu 1,2 milljónir króna í styrk, sem er aukning um kr. 100.000 frá fyrra ári. Félagið hefur í mörg ár styrkt Jólaaðstoðina, samstarfverkefni Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins á Akureyri. Mikil ánægja var með samstarfið í tengslum við jólaaðstoðina og því var ákveðið að útvíkka starfsemina og stofna Velferðarsjóð á Eyjafjarðarsvæðinu sem sér um velferðaraðstoð á ársgrundvelli.

Á heimasíðu sjóðsins segir að með þessari breytingu er vonast til að einfaldara verði að leita sér aðstoðar allan ársins hring og að betur sé hægt að halda utan um upplýsingar um þörfina í samfélaginu. Starfssvæði sjóðsins er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur. 

Á heimasíðu sjóðsins segir jafnframt að jólin nálgast og vonandi vekur sú tilhugsun upp gleði og tilhlökkun hjá sem flestum. „Við vitum þó að jólin geta valdið mörgum áhyggjum af ýmsum ástæðum. Fjárhagslegir erfiðleikar geta gert fólki erfitt að halda gleðileg jól og þess vegna viljum við minna á söfnun fyrir jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis.“ 

Mikil fjölgun á milli ára
Sjóðurinn aðstoðar efnaminni einstaklinga og fjölskyldur bæði fyrir jólin og á öðrum tíma árs en reynslan sýnir að eftirspurnin eftir aðstoð er mest í aðdraganda jólanna. „Samtals fengu 474 heimili og einstaklingar jólaaðstoð árið 2022 og var það mikil fjölgun umsókna milli ára. Búast má við því að enn fleiri umsóknir berist fyrir jólin þetta árið, en í reglubundnum úthlutum sjóðsins árið 2023 höfum við séð að þörfin fyrir og eftirspurn eftir aðstoð hefur stóraukist. Mörg heimili á Eyjafjarðarsvæðinu eru illa stödd fjárhagslega og þurfa á aðstoð að halda,“ segir á heimasíðunni. 

Ómetanlegur stuðningur
Haft var samband við fyrirtæki og samtök á svæðinu með ósk um stuðning. „Stjórn Velferðarsjóðs á Eyjafjarðarsvæðinu vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem leggja starfinu lið. Án þessa mikla velvilja í samfélaginu væri ekki hægt að styrkja efnaminni heimili á svæðinu með þeim hætti sem nú er gert. Ykkar stuðningur er ómetanlegur.“ 

Þau sem vilja styrkja jólaaðstoð Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis er bent á eftirfarandi söfnunarreikning: 

Kt. 651121-0780
Rn. 0302-26-003533