Ekki lengur sérstök vetrarleiga

Nú er alltaf hægt að bóka orlofshús eða íbúð um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabil…
Nú er alltaf hægt að bóka orlofshús eða íbúð um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi.

Vert er að minna félagsfólk á að félagið er ekki lengur með sérstaka vetrarleigu orlofshúsa.

Nú er alltaf hægt að bóka orlofshús eða íbúð um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi.

Orlofskerfi félagsins virkar þannig að á miðnætti bætist alltaf  einn dagur við kerfið sem hægt er að bóka. Áður var opnað fyrir vetrarleigu þann 1. ágúst ár hvert en þegar nýtt orlofskerfi var tekið í notkun varð sem sagt breyting þar á.

Áhugasamir geta því kíkt núna á bókunarsíðuna, bókað og greitt fyrir hús eða íbúð. Leigja má íbúðir og hús sex mánuði fram í tímann, sami aðili má skrá sig fyrir allt að sjö gistinóttum á íbúð og sjö gistinóttum á hús á næstu sex mánuðum.

Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins.