How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Vert er að minna félagsfólk á að félagið er ekki lengur með sérstaka vetrarleigu orlofshúsa.
Alltaf er hægt að bóka orlofshús eða íbúð um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi.
Áhugasamir geta því kíkt á bókunarsíðuna, bókað og greitt fyrir hús eða íbúð. Leigja má íbúðir og hús sex mánuði fram í tímann, sami aðili má skrá sig fyrir allt að sjö gistinóttum á íbúð og sjö gistinóttum á hús á næstu sex mánuðum.
Um jól, áramót og páska eru einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félagsins.