VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlitið bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á Teams miðvikudaginn 18. september milli kl. 8.30 og 9.30 undir yfirskriftinni „Er allt í gulu á þinum vinnustað?“.
Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis
Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sérfræðingur hjá VIRK, og María Jónsdóttir sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu
Sara Hlín Hálfdanardóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu
Skráning á Teamsfundinn er hér.
Morgunfundurinn er sá 15. í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið Heilsueflandi vinnustaðar er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.