Eru félagsgjöldin ekki örugglega að skila sér?

Fylgstu með á Félagavefnum og fáðu upplýsingar um hvort félagsgjöldin séu að skila sér til okkar. Félagsgjöld til Einingu-Iðju eru 1 % af launum og sér vinnuveitandi um skil þeirra til félagsins. Til að viðhalda fullgildum félagsrétti í Einingu-Iðju þurfa félagsgjaldsgreiðslur að berast reglulega. Ef ekkert félagsgjald er greitt í sex mánuði samfellt fellur viðkomandi félagsmaður af félagsskrá.

Með greiðslu lágmarksfélagsgjalda koma tiltekin réttindi. Hjá Einingu-Iðju hafa félagsmenn t.d. rétt til:

  • Upplýsinga um réttindi og skyldur
  • Aðstoðar við túlkun kjarasamninga
  • Aðstoðar við gerð ráðningarsamninga
  • Aðstoðar við útreikninga á launum og innheimtu
  • Aðstoðar ef upp kemur ágreiningur á vinnustað
  • Lögfræðiaðstoðar tengda kjaramálum
  • Aðstoðar í veikindum í gegnum sjúkrasjóðinn
  • Styrkja til forvarna og endurhæfingar
  • Niðurgreiðslu á námi og námskeiðum
  • Aðgangs að orlofshúsum

Upphæð félagsgjalda og nafn stéttarfélags á að koma fram á launaseðli. Á Félagavef Einingar-Iðju er hægt að fylgjast með skilum félagsgjalda og sjá yfirlit yfir greidd félagsgjöld aftur í tímann. Eining-Iðja hvetur félagsmenn til að skoða launaseðilinn sinn vel og fylgjast með skilum félagsgjalda á Félagavefnum.