Eru Íslendingar lélegir neytendur? Morgunverðarfundur í beinu streymi

Verðlagseftirlit ASÍ og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um samkeppnis- og neytendamál sem verður haldið þriðjudaginn 19. október kl. 08:30-10:00 á Grand Hótel, Reykjavík. Beint streymi verður af fundinum og hann tekinn upp fyrir þau sem komast ekki á staðinn.

Eru Íslendingar lélegir neytendur? Hvaða áhrif hefur skortur á samkeppni, neytendavernd og eftirliti með viðskiptaháttum á atvinnulíf, viðskipti, verðlag og lífskjör? Er eitthvað sem má betur fara í þessum málum hér á landi? 

Á fundinum verður leitast við að svara þessum spurningum og fleiri. Fjallað verður um hlutverk, stöðu og umhverfi þeirra opinberu stofnanna og félagasamtaka sem fara með samkeppnis- og neytendamál hér á land og áherslur stjórnvalda í því samhengi. Einnig verður fjallað um fyrirkomulag þessara mála í nágrannalöndunum. 

Á fundinum verða nokkur styttri erindi og pallborð. Í pallborði verða fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu, Neytendasamtökunum, Samtökum verslunar og þjónustu, Neytendasamtökunum og  verkalýðshreyfingunni. 

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.