Eyjafjörður er ekki láglaunasvæði

Síðustu níu ár hefur Eining-Iðja í samstarfi við AFL Starfsgreinafélag fengið Gallup til að framkvæma viðamikla viðhorfs- og kjarakönnun á meðal félagsmanna sinna. Þessar kannanir eru sambærilegar könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera, m.a. á Höfuðborgarsvæðinu, og sýna niðurstöður undanfarinnar ára að Eyjafjörður er ekki láglaunasvæði.  

Í Fréttablaðinu í gær er fjallað um rannsókn Rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, kynnti niðurstöður rannsóknarinnar á haustfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar nýverið. Þar kom m.a. fram að samkvæmt nánast öllum efnahagslegum mælikvörðum er gott ástand í öðru stærsta hagkerfi landsins sem Eyjafjarðarsvæðið og Þingeyjarsýslurnar eru og hefur svæðið þróast í jákvæða átt á flestum sviðum síðustu ár. Haft var eftir Jóni Þorvaldi að rannsóknin staðfesti það sem fram hafi komið í rannsókn árið 2014 að Eyjafjörður sé ekki láglaunasvæði og að heimili og fyrirtæki búi við góða fjárhagsstöðu.

Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir að þessu ummæli Jóns komi sér ekki á óvart því niðurstöður undanfarinnar ára í Gallup könnunum félagsins sýna að Eyjafjörður er ekki láglaunasvæði. "Ég fagna því að háskólasamfélagið sé komið á sömu skoðun og við því oft höfum við reynt að halda þessu fram fyrir daufum eyrum þar til nú."