Fékkst þú launahækkun?

Laun og launatengdir liðir skv. núgildandi kjarasamningum hækkuðu þann 1. janúar 2021 sem hér segir: 

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði - Nýr kauptaxti
Kauptaxtar hækkuðu um kr. 24.000 og almenn mánaðarlaun fyrir fullt starf hækkuðu um kr. 15.750. Aðrir kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækkuðu um 2,5% á sömu dagsetningu. Einnig hækkuðu lágmarkstekjur fyrir fullt starf og verða 351.000 kr. á mánuði fyrir fullt starf frá 1. janúar 2021. 

Starfsfólk sveitarfélaga - Nýr kauptaxti
Kauptaxtar hækkuðu um kr. 24.000. 

Starfsfólk ríkisins - Nýr kauptaxti
Ný launatafla tók gildi hjá ríkinu 1. janúar 2021 sem byggir á álagsþrepum í stað aldursþrepa. Varpa þarf störfum í nýju töfluna, tryggt verður að enginn sem raðast fyrir neðan launaflokk 17 í dagvinnutaxta í desember 2020 fái minna en sem nemur kr. 24.000 hækkun á dagvinnulaunum. Aðrir fá að lágmarki 18.000 kr. hækkun. Í einhverjum tilvikum gæti þurft að varpa einstaklingi í hærri flokk/þrep en röðunarforsendur gera ráð fyrir. Til að fá frekari hækkun á röðun verður viðkomandi fyrst að uppfylla skilyrði samkvæmt nýjum röðunarforsendum.

Yfirfarið launaseðlana ykkar vandlega og bregðist við ef þið verðið vör við að umræddar launahækkanir hafi ekki skilað sér.