Félagsmannasjóður - Aftur var greitt út fyrr í dag

Í dag, þriðjudaginn 27. febrúar, var aftur greitt úr Félagsmannasjóði til starfsmanna sveitarfélaga á félagssvæði Einingar-Iðju. Auk starfsmanna sveitarfélaga fá einnig starfsmenn Heilsuverndar, Hólmasólar, Fjölsmiðjunar og Hamra, útilífsmiðstöðvar skátar greitt úr sjóðnum.

Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi bankaupplýsingar félagsmanna sem eiga rétt á að fá greiðslu úr félagsmannasjóði. 1. febrúar sl. fengu 1.656 félagsmenn Einingar-Iðju greitt tæpar 95,5 milljónir króna úr sjóðnum, en greiðslan í dag var til þeirra félagsmanna sem voru búnir að uppfæra bankaupplýsingar á Mínum síðum félagsins. Fyrr í dag fengu því 31 félagsmaður greiddar rúmar 1,3 milljónir.

Þegar greitt var úr sjóðnum þann 1. febrúar sl. vantaði bankaupplýsingar hjá 305 félagsmönnum eða þá að þær eru rangt skráðar og á því átti eftir að greiða um 5,8 milljónir úr sjóðnum. Hæsta einstaka upphæðin er rúmar 100.000 krónur þannig að ef þú ert að vinna á þessum vinnustöðum en fékkst ekki greiðslu frá félaginu 1. febrúar eða fyrr í dag þá hvetjum við þig til að fara inn á Mínar síður félagsins og skrá inn þessar upplýsingar sem og síma og netfang. 

Eru þínar upplýsingar réttar?
Skráðu þig inn á Mínar síður félagsins, með rafrænum skilríkjum, þar getur þú kannað hvort við séum með réttar upplýsingar um þig og lagfært ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn þá máttu endilega senda tölvupóst á rosfrid@ein.is

Á næstunni verður aftur greitt úr sjóðnum til þeirra sem skila inn umbeðnum upplýsingum.

Í grein 13.8 í samningi SGS við sveitarfélögin er fjallað um Félagsmannasjóð, þar stendur m.a.:

  • Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í félagsmannasjóð sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna. Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 1. febrúar ár hvert samkvæmt stofnskrá sjóðsins.
  • Félagsmannasjóðurinn er stofnsettur vegna kröfu ASÍ félaga um jöfnun lífeyrisréttinda milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og opinberra.