How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Ertu félagsmaður í Einingu-Iðju og starfar núna hjá sveitarfélagi, Hólmasól, Fjölsmiðjunni eða Hömrum, útilífsmiðstöð skáta? Eða starfaðir þú á þessum vinnustöðum á árinu?
Eining-Iðja á aðild að sjóðnum og ber að standa skil á þessum greiðslum til félagsmanna sem starfa eftir þessum samningi 1. febrúar ár hvert fyrir árið á undan. Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi bankaupplýsingar félagsmanna sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum.
Athugið að ekki er tekin staðgreiðsla af upphæðinni sem greidd er út til félagsmanna. Því þarf að greiða skatta af þessum greiðslum eftir á.
Kíktu inn á Mínar síður og kannaðu þínar upplýsingar!
Mínar síður Einingar-Iðju inniheldur margvíslegar upplýsingar um réttindi félagsfólks. Þar má einnig setja inn eða laga ef þarf umbeðnar upplýsingar fyrir Félagsmannasjóðinn og auðvitað einnig netfang og símanúmer.
Á Mínum síðum er sótt um eða pantað og greitt fyrir orlofshús og íbúðir, sótt um fræðslustyrki, sjúkrastyrki og sjúkradagpeninga. Jafnframt er hægt að fylgjast með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum. Þá getur félagsfólk sem vinnur eftir sveitarfélagasamningi fylgst með inneign í Félagsmannasjóði, sem er til útgreiðslu 1. febrúar ár hvert.