Fjallabyggð og Grýtubakkahreppur benda á SÍS

Svör hafa borist frá Grýtubakkahreppi og Fjallabyggð vegna erindis félagsins sem sent var til allra sveitarfélaga á svæðinu þar sem farið var fram á að sveitarfélögin greiði starfsfólki sínu sem starfa eftir samningi SGS innágreiðslu þann 1. ágúst að upphæð kr. 105.000 m.v. 100% starf þann 1. júní sl. og hlutfallslega fyrir lægra starfshlutfall.

Ákveðið var að senda slíkt bréf á sveitarfélög eftir að Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) sendi á þau bréf þar sem ætlast var til að sveitarfélögin mismuni sínu starfsfólki.

Kjaradeila SGS og sveitarfélaganna er í hörðum hnút og var vísað til Ríkissáttasemjara vegna þess að Samninganefnd sveitarfélaganna krafðist þess að SGS félli frá fyrirliggjandi samkomulagi um jöfnun lífeyrisréttinda og það yrði ekki rætt í kjaraviðræðunum. Vegna þess hversu samningaviðræður við sveitarfélög og ríki hafa dregist náðist samkomulag, þ.e. við aðra samningsaðila en SGS, að starfsfólk með lausa kjarasamninga fengi eingreiðslu að upphæð 105.000 kr. sem greiðist út 1. ágúst sem innágreiðsla fyrir nýjan kjarasamning.

Hér fyrir neðan má svarið sem félagið fékk sent frá Grýtubakkahreppi

Eins og bréfritari veit mæta vel, fer Samband íslenskra sveitarfélaga með samningsumboð Grýtubakkahrepps.  Það hefur ekki verið afturkallað og ber að beina erindum vegna samningamála þangað. 

Grýtubakkahreppur mun að sjálfsögðu eftirleiðis sem hingað til, fúslega greiða þeim starsmönnum sínum sem eru félagar í Einingu, hverja þá greiðslu sem Eining semur um fyrir þeirra hönd við til þess bæran aðila, þ.e. Samband íslenskra sveitarfélaga.

Hér fyrir neðan má svarið sem félagið fékk sent frá Fjallabyggð

"Bæjarráð vill benda á, að samningsumboð sveitarfélagsins vegna kjarasamninga er hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og þar af leiðandi mun sveitarfélagið eða fulltrúar þess ekki tjá sig u efni bréfs Einingar-Iðju eða taka afstöðu til þess."

Viðbrögð sveitarfélaga við erindi félagsins:

  • Akureyrarbær. NEI
  • Dalvíkurbyggð. NEI
  • Fjallabyggð. Taka ekki afstöðu, benda á Samband íslenskra sveitarfélaga.
  • Eyjafjarðarsveit.
  • Grýtubakkahreppur. Benda á Samband íslenskra sveitarfélaga.
  • Hörgársveit. NEI
  • Svalbarðsstrandahreppur.