Fjölsmiðjan - Nýr samstarfssamningur við Akureyrarbæ

Mynd af akureyri.is: Karólína Gunnarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Akureyrarbæjar, Erlingur Kri…
Mynd af akureyri.is: Karólína Gunnarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Akureyrarbæjar, Erlingur Kristjánsson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra gæddu sér á gúllasi í Fjölsmiðjunni við undirskriftina.

Fyrr í vikunni undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, og Erlingur Kristjánsson, forstöðumaður Fjölmiðjunnar, nýjan samstarfssamning um þjónustu Fjölsmiðjunnar á Akureyri sem gildir fyrir árin 2026 og 2027. Vert er að taka fram að Eining-Iðja er einn af stofnaðilum Fjölsmiðjunnar á Akureyri. 

Markmið samningsins er að efla Fjölsmiðjuna sem starfsþjálfunarstað fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Einnig er lögð áhersla á að styrkja tengsl og samvinnu Fjölsmiðjunnar og þeirra aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með ungu fólki.

Fjölsmiðjan veitir atvinnulausu ungu fólki vinnu með það að markmiði að hver einstaklingur njóti sín og verði betur í stakk búinn til að takast á við kröfur samfélagsins, hvort sem er á vinnumarkaði eða í námi. Þegar ungmennin eru tilbúin eru þau studd í vinnu eða skóla.

Í Fjölsmiðjunni er rekið mötuneyti, bílaþvottastöð, búð með notuð húsgögn og fleira, auk móttöku fyrir endurvinnslu á tölvum og öðrum raftækjum. Þegar aðsókn er mest sækja um 20-25 ungmenni í Fjölsmiðjuna.

Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér starfsemi og þjónustu Fjölsmiðjunnar en það er hægt að gera með því að smella hér