Fleiri fundir í boði fyrir trúnaðarmenn félagsins

Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi félagsins. Samkvæmt samningum á að vera t…
Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi félagsins. Samkvæmt samningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum sem hafa 5 eða fleiri félagsmenn. Þar sem starfa fleiri en 50 eiga að vera 2 trúnaðarmenn.

Í október hélt félagið tíu fundi með trúnaðarmönnum Einingar-Iðju þar sem farið var yfir ýmis mál með starfsmönnum félagsins og nokkrum öðrum trúnaðarmönnum.  Ekki komust allir á fundina í október og nýir trúnaðarmenn komnir í hópinn og því var ákveðið að bjóða upp á 7 fundi í næstu viku. Sex þeirra fara fram í sal félagsins á Akureyri 7. og 8. nóvember og einn í fjarfundi 7. nóvember.

Búið er að senda tölvupóst á þá trúnaðarmenn sem eiga eftir að mæta á fund og biðja þá um að skrá sig á einn af þeim fundum sem í boði eru.

Eftir fundina tíu sagði Tryggvi Jóhannsson, varaformaður félagsins, að þeir hafi allir tekist mjög vel. "Það er alltaf gott að hitta trúnaðarmennina okkar sem eins og við segjum oft eru okkar mikilvægasta fólk, tengingin okkar inn á vinnustaðina, og heyra hvað þeir hafa um málin að segja. Ýmislegt var rætt á þessum fundum m.a. um þeirra starf og tenginu við félagið, trúnaðarmannanámskeiðin, tímasetningar funda og félagið sjálft. Þarna vorum við að hittast í fámennum hópum sem skilaði því að allir tóku þátt í umræðunni og komu með mikilvæga punkta sem við munum vinna með áfram."