Stjórn orlofsbyggðarinnar Flókalundar á Vestfjörðum hefur ákveðið að lengja leigutímabil á svæðinu og verður það opið í ár út nóvember.
Félagsmenn geta því leigt orlofshús félagsins í Flókalundi mun lengur þetta árið en verið hefur. Eftir sumarúthlutun verða einungis helgarleigur í boði, það er frá fimmtudegi til mánudags.
Það eina sem þarf að gera er að skrá sig inn á Mínar síður félagsins, skoða hvað er laust, bóka og borga.
Nú gildir fyrstur bókar á Mínum síðum og greiðir þar, fyrstur fær.