Flókalundur í leigu út nóvember

Vert er að minna á að stjórn orlofsbyggðarinnar Flókalundar á Vestfjörðum ákvað að lengja leigutímabil á svæðinu og verður það opið út nóvember í ár. 

Félagsmenn geta því leigt orlofshús félagsins í Flókalundi mun lengur þetta árið en verið hefur. Eftir sumarúthlutun verða einungis helgarleigur í boði, það er frá fimmtudegi til mánudags.

Það eina sem þarf að gera er að skrá sig inn á Mínar síður félagsins, skoða hvað er laust, bóka og borga.

Nú gildir fyrstur bókar á Mínum síðum og greiðir þar, fyrstur fær.