Formannafundur SGS fagnar vaxtalækkun Seðlabankans

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands sem stóð yfir á Hallormsstað í gær og í dag sendi fyrr í dag frá sér eftirfarandi ályktun.

Yfirlýsing peningastefnunefndar Seðlabankans frá 22. maí síðastliðinn þar sem stýrivextir voru lækkaðir um 0,5% er vonandi upphafið á langvarandi vaxtalækkunferli. Vaxtalækkun var ein af forsendum kjarasamnings sem félög innan Starfsgreinasambandsins ásamt fleiri félögum í verkalýðshreyfingunni undirrituðu nú í apríl. 

Í vaxtalækkuninni felast mikilvægar kjarabætur til launafólks í landinu. Um leið og það er ítrekað að hér er vonandi bara fyrsta skrefið í vaxtalækkunum þá er það gríðarlega mikilvægt að bankar, fjármálastofnanir og aðrir lækki strax sína vexti og ávinningur skili sér til launafólks sem hefur skapað þessa möguleika.