Fyrr í vikunni fór um 50 manna hópur sem samanstóð af félagsmönnum og mökum í dagsferð út í Flatey á Skjálfanda. Óhætt er að segja að ferðin hafi tekist í alla staði mjög vel.
Lagt var af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 9:00 og ekið sem leið lá til Húsavíkur. Þaðan var siglt með hvalaskoðunarbát frá Norðursiglingu út í Flatey. Í boði voru veitingar og gönguferð um eyjuna unfir leiðsögn heimamanna.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í ferðinni.
Myndasmiðir: Björn Snæbjörnsson og Elsa Sigmundsdóttir