Frábær mæting á Matarmenningarhátíðina

Í gær bauð Eining-Iðja félagsmönnum sínum á Matarmenningarhátíð í HOFI þar sem félagsmenn frá 12 ólíkum löndum buðu upp á smakk á mat frá sínu heimalandi. 

Hátíðin stóð yfir í tvo tíma, milli kl. 17:00 og 19:00, og er óhætt að segja að hún hafi verið vel heppnuð. Mikið var af æðislega góðum mat í boði og frábær mæting. "Það var virkilega mikil gleði og afslappað andrúmsloft á meðal gesta á meðan þeir nutu veitinga sem í boði voru. Hátíðin fór fram í Hamragil í HOFI í ár en greinilegt er að við þurfum að gera ráð fyrir meira plássi næst. Allir þeir fjölmörgu gestir sem mættu voru með bros á vör á meðan gengið var á milli borða og smakkað á öllu góðgætinu. Takk öll sem tóku þátt, félagið mun pottþétt endurtaka leikinn síðar," segir Tryggvi Jóhannsson, varaformaður félagsins. 

Félagsmenn frá 12 eftirfarandi löndum tóku þátt að þessu sinni.

  • Grikklandi     

  • Íslandi

  • Nígeríu

  • Panama

  • Perú

  • Póllandi     

  • Spáni

  • Tælandi

  • Úkraínu

  • Venasúela

  • Filippseyjum

  • Palestínu

Nokkrar myndir frá hátíðinni má sjá hér fyrir neðan.