Fræðsla á flokkstjóranámskeiði

Vinnuskólar landsins eru um þessar mundir að fara í gang eftir vetrardvala. Á hverju vori halda mörg sveitarfélög námskeið fyrir flokkstjóra sem starfa í vinnuskólunum. Þessa vikuna stendur yfir í SÍMEY námskeið fyrir flokkstjóra vinnuskóla Akureyrar.

Í gær var Rut, þjónustufulltrúi hjá félaginu, með fræðslu í SÍMEY fyrir flokkstjórana. Þar fór hún yfir m.a. yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Það er ýmislegt annað sem farið er yfir á þessu námskeiði, m.a. skyndihjálp, fagleg vinnubrögð við garðslátt, leiðtogaþjálfun og hagnýtar leiðir í vinnu með unglingum. Fjallabyggð hefur líka verið með námskeið fyrir sína flokkstjóra og fyrir starfsmenn í sumarafleysingu í áhaldahúsi sveitarfélagsins og hefur oft  fengið félagið til að mæta þangað með fræðslu um réttindi og skyldur.

Síðar í júní er búið að fá félagið til að vera með kynningu fyrir alla sem eru í vinnuskólanum á Akureyri og hugsanlega verður slik kynning á fleiri stöðum.