Eitt af hlutverkum Vinnuskóla er markviss fræðsla á ýmsum sviðum auk forvarna. Ár hvert skipuleggja forvarna- og félagsmálaráðgjafar Akureyrarbæjar fræðslu fyrir ungmenni Vinnuskólans. Fræðslan er hluti af menntahlutverki Vinnuskólans og mikilvægur hluti af fjölbreyttri upplifun ungmennanna. Fjölmargir koma að þeirri fræðslu, m.a. Eining-Iðja.
Fyrr í vikunni mættu Rut, mannauðs- og fræðslustjóri hjá Einingu-Iðju, Ásta Guðný og Glódís, sérfræðingar á kjarasviði félagsins, á eina af starfsstöðvum vinnuskólans og voru þar með fræðslu fyrir hóp ungmenna um réttindi og skyldur þeirra á vinnumarkaði. Í næstu viku verður boðið upp á tvær slíkar kynningar en þá munu þær Ásta Guðný og Glódís sjá um fræðsluna.
Vinnuskólinn hóf störf á Akureyri árið 1951. Smelltu hér til að finna allar nánari upplýsingar um vinnuskólann á heimasíðu Akureyrarbæjar.