Fræðsla í Vinnuskóla Akureyrar

Elsa Hrönn tók meðfylgjandi mynd í Rósenborg í vikunni.
Elsa Hrönn tók meðfylgjandi mynd í Rósenborg í vikunni.

Eitt af hlutverkum Vinnuskóla er markviss fræðsla á ýmsum sviðum auk forvarna. Fjölmargir koma að þeirri fræðslu, m.a. Eining-Iðja.

Í vikunni mætti félagið á tvær starfsstöðvar Vinnuskólans, Rósenborg og Síðuskóla, og var þar með fræðslu fyrir ungmenni á aldrinum 14 til 16 ára um réttindi og skyldur þeirra á vinnumarkaði.

Í næstu viku verður félagið með eina slíka fræðslu í viðbót fyrir ungmennin. 

Rut Pétursdóttir, mannauðs- og fræðslustjóri Einingar-Iðju, og Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, varaformaður félagsins, sáu um fræðsluna að þessu sinni.