Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG

ASÍ-UNG stendur fyrir fræðslu- og tengsladögum dagana 11. og 12. apríl nk. í Reykjanesbæ. Þessir dagar eru ætlaðir félagsmönnum á aldrinum 16 til 35 ára sem áhuga hafa á starfi stéttarfélaga. Síðast þegar slíkur viðburður var haldinn var góð þátttaka og skapaðist skemmtilegt andrúmsloft. 

ASÍ-UNG hvetur öll félög til að taka þátt og senda fulltrúa og mun Eining-Iðja að sjálfsögðu gera það nú sem áður á slíkan viðburð.

Áhugasamir félagsmenn á aldrinum 16 til 35 ára geta fengið nánari upplýsingar um viðburðinn með því að hafa samband við Önnu varaformann félagsins, annajul@ein.is

Dagskrá 
Fimmtudagur – 11. apríl

  • 12:00 – 13:00 Móttaka, hádegismatur og skráning
  • 13:15 – 13:30  Erindi: Formaður ASÍ-UNG
  • 13:30 – 14:30 Fræðsluerindi nr.1 – Umhverfismál og atvinnulýðræði
  • 14:30 – 15:00 Kaffipása
  • 15:00 – 15:30 Erindi: Formaður BSRB
  • 15:30 – 16:30 Fræðsluerindi nr.2 – Jafnréttismál og málefni innflytjenda
  • 16:30 – 17:00 Samantekt
  • 19:00       Kvöldverður í boði ASÍ-UNG

Föstudagur – 12. apríl

  • 09:30 – 10:00 Erindi: Forseti ASÍ
  • 10:00 – 11:30  Samtal um framtíð vinnumarkaðarins
  • 11:30 – 11:40   Formaður ASÍ-UNG lýkur viðburðinum

ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungra Íslendinga á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.