ASÍ-UNG stendur fyrir fræðslu- og tengsladögum dagana 19. og 20. mars nk. í Borgarnesi, nánar tiltekið á Hótel Vesturlandi. Viðburðurinn er ætlaður félagsfólki í aðildarfélögum ASÍ á aldrinum 16-35 ára og miðar því að efla þekkingu á verkalýðshreyfingunni og styrkja tengsl milli ungs fólks innan hennar. Síðast þegar slíkur viðburður var haldinn var góð þátttaka og skapaðist skemmtilegt andrúmsloft.
Félagið á tvo stjórnarmenn í ASÍ-UNG, þau Elsu Hrönn Gray Auðunsdóttur og Valdimar Friðjón Jónsson, og munu þau mæta á viðburðinn fyrir hönd félagsins.
Dagskrá
Fimmtudagur
Föstudagur
ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungra Íslendinga á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.