Fræðsluátak nær til 1. apríl 2021!

Vert er að minna aftur á að í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi ákváðu stjórnir Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar að rýmka úthlutunarreglur einstaklingsstyrkja í ákveðinn tíma. Átakið gilti fyrst frá 15. mars til og með 31. ágúst 2020, það var framlengt til áramóta og svo var ákveðið að framlengja átakið til 1. apríl 2021. Átakið gildir gagnvart námi/námskeiðum sem hefjast innan þessa sama tímaramma. 

Frír aðgangur að námskeiðum
Fræðslusjóðirnir gerðu samninga við fræðsluaðila sem bjóða upp á vefnám/fjarnám þar sem fyrirtækjum og einstaklingum er boðin þátttaka í námi/námskeiðum þeim að kostnaðarlausu. Þetta gildir einnig um staðbundið nám þar sem því er við komið vegna aðstæðna. Þessir samningar gilda einnig tímabundið og gagnvart því námi/námskeiðum sem fræðsluaðilar bjóða upp á innan þessa tímaramma, það er frá 15. mars til og með 1. apríl 2021. Einstaklingar og fyrirtæki geta skráð sig hjá viðkomandi fræðsluaðilum sem sjóðirnir eru með samninga við án þess að greiða námskeiðsgjald (gildir gagnvart námi/námskeiði sem kostar að hámarki 30.000).

Að auki eru sjóðirnir allir að fjármagna íslenskunámskeið að fullu hjá símenntunarmiðstöðvunum. 

Breytingar á úthlutunarreglum, til viðbótar

  • Endurgreiðslur til fyrirtækja vegna kostnaðar við námskeiðahald, voru hækkaðar úr allt að 75% í allt að 90% af styrkhæfum heildarkostnaði. Gildistími verði frá 15. mars til og með 1. apríl 2021.
  • Hámarksupphæð einstaklingsstyrkja verður áfram kr. 130.000 á ári miðað við núverandi reglur. Hlutfalli endurgreiðslu var hins vegar breytt og er 90% í stað 75% af kostnaði við námið. Gildistími frá 15. mars til og með 1. apríl 2021.
  • Tómstundstyrkir sem voru 75% en að hámarki kr. 30.000 á ári eru í sama hámarki og hefðbundnir styrkir, það er kr. 130.000 á ári. Hlutfall endurgreiðslunnar verði sömuleiðis 90% af viðurkenndum kostnaði við námið. Gildistími verði frá 15. mars til og með 1. apríl 2021. 

Hér má sjá lista yfir framboð á námi sem búið er að semja um 

Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni, um er að ræða stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands (SGS). Ríkismennt er þróunar-og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga SGS. Sveitamennt er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga SGS.