Fræðsludagar starfsfólks aðildarfélaga SGS

Dagana 19. og 20. mars nk. mun Starfsgreinasambandið standa fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk aðildarfélaga sambandsins, en þetta verður í sjöunda sinn sem SGS stendur fyrir viðburði sem þessum. Að þessu sinni fara fræðsludagarnir fram á Northern Light Inn í Grindavíkurbær.

Dagskráin verður fjölbreytt og er sett saman samkvæmt óskum þátttakenda. Alls munu sjö starfsmenn félagsins fara á þessa fræðsludaga.