Starfsgreinasambandið stendur árlega fyrir fræðsludögum starfsfólks, en þá kemur starfsfólks aðildarfélaga sambandsins saman til að fræðast og kynnast. Fræðsludagarnir, sem voru fyrst haldnir árið 2014, hafa ávalt verið vel sóttir og notið vinsælda meðal þátttakenda.
Dagana 6. og 7. maí sl. stóð Starfsgreinasambandið fyrir slíkum fræðsludögum og kom starfsfólkið saman á Hótel Selfossi. Mæting var með allra besta móti, en alls mættu 40 fróðleiksfúsir fulltrúar frá 15 félögum. Fjórir þáttakendur frá Einingu-Iðju mættu á fræðsludagana að þessu sinni, þau Aðalbjörg G. Hauksdóttir, Helga Níelsdóttir, Ína Sif Stefánsdóttir og Vilhelm Adolfsson.
Á heimasíðu SGS segir að dagskrá fræðsludagana var með fjölbreyttu sniði og samræmi við ábendingar starfsfólksins. Fyrri daginn var námskeið Margrétar Reynisdóttur hjá gerumbetur.is um erfið samskipti. Eftir námskeiðið bauð Halldóra Sveinsdóttir formaður Bárunar starfsfólkinu í heimsókn. Seinni daginn fóru Björg Bjarnadóttir og Arinbjörn Rögnvaldsson yfir starfsemi og hvað væri fram undan hjá SGS, svo mættu þær Solveig Ólöf Magnúsdóttir og Lilja Baldursdóttir frá Landsmennt og áttu fróðlegar og góðar samræður við starfsfólkið um starfsemi fræðslusjóða.
Fræðludagarnir þóttu vel heppnaðir og góður rómur var gerður hjá öllum sem tóku þátt enda frábær hópur.