Fræðslustyrkir hækka fyrir einstaklinga

Vert er að minna aftur á að stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar samþykktu í desember að hækka hámark einstaklingsstyrkja úr kr. 100 þúsund í kr. 130 þúsund.

Þar sem samþykkt var að hækka frá og með síðustu áramótum hámark einstaklingsstyrkja í kr. 130.000 hækkar einnig hámark á uppsöfnuðum rétti til styrks í kr. 390.000.

Hækkunin tók gildi frá og með 1. janúar 2020 og gildir gagnvart því námi sem hófst frá og með þeim tíma.

Nánari upplýsingar um styrkina