Fólk sem vinnur fullan vinnudag á kjarasamningsbundnum launum gæti misst möguleikann á áframhaldandi dvöl eða ríkisborgararétti vegna nýrra framfærslukrafa stjórnvalda.
Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ, og Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur hjá BSRB, svara dómsmálaráðherra í nýrri grein á Vísi:
„Ríkið sjálft greiðir laun undir þessum framfærslukröfum en ætlar nú að setja reglur sem gera þau að hindrun fyrir áframhaldandi dvöl fólks sem hér býr.“