Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn í gær, þriðjudaginn 13. maí í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf og mæting góð. Félagið átti rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn, en þeir voru kosnir á aðalfundi félagsins sem fram fór 22. apríl sl.
Elsa Björg Pétursdóttir, stjórnarformaður sjóðsins, flutti skýrslu stjórnar. Því næst fór Jóhann Steinar Jóhannsson framkvæmdastjóri yfir ársreikning og áritanir auk þess að gera grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu. Jóna Finndís Jónsdóttir, forstöðumaður réttindasviðs Stapa, fór yfir víxlverkanir almannatrygginga og lífeyrissjóða en breytingar eru að verða þar á þann 1. september nk. sem munu hafa áhrif á lífeyrisþega og lífeyrissjóði. Þá fór Óli Þór Birgisson, forstöðumaður eignastýringar, yfir fjárfestingarstefnu og ávöxtun það sem af er ári 2025. Að þvi loknu fór Jóhann Steinar yfir hluthafastefnu sjóðsins.
Stjórnarkjöri var lýst en stjórn sjóðsins var kosin á fulltrúaráðsfundi sjóðsins þann 15. apríl sl. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs skipa í dag:
Frá launamönnum:
Guðný Hrund Karlsdóttir (til 2026), Björn Snæbjörnsson (til 2027), Sigríður Dóra Sverrisdóttir (til 2027) og Þórarinn Sverrisson (til 2026).
Varamenn: Gunnhildur Imsland (til 2026) og Heimir Kristinsson (til 2027).
Frá launagreiðendum:
Elín Hjálmsdóttir (til 2026), Elsa Björg Pétursdóttir (til 2027), Kristinn Kristófersson (til 2027) og Tryggvi Þór Haraldsson (til 2026).
Varamenn: Guðrún Ingólfsdóttir (til 2027) og Páll Snorrason (til 2026).
Næst lagði stjórn Stapa til að KPMG ehf. verði endurskoðandafyrirtæki sjóðsins á árinu 2025 og var tillagan samþykkt samhljóða.
Samþykkt var samhljóða tillaga stjórnar um að Ragna Hrund Hjartardóttir verði kjörin utanaðkomandi aðili í endurskoðunarnefnd sjóðsins.
Þá var farið yfir starfskjarastefnu Stapa sem er efnislega óbreytt frá fyrra ári. Í umfjöllun um framkvæmd starfskjarastefnu (5.tl.) var hins vegar skerpt á orðalagi til að taka af allan vafa um að sjóðurinn notar ekki og hyggst ekki styðjast við kaupauka við framkvæmd starfskjarastefnu sinnar. Tillögurnar voru samþykktar samhljóða.
Nefnd um laun stjórnar lagði til að stjórnar- og nefndarlaun hjá Stapa hækki um 3,5%. Við mat á hækkun var m.a. tekið mið af forsendum kjarasamninga á almenna vinnumarkaðinum. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Þá var nefnd um laun stjórnar samþykkt samhljóða en í nefndinni sitja nú Anna María Kristinsdóttir og Geir Kristinn Aðalsteinsson frá atvinnurekendum og Ósk Helgadóttir frá launþegum. Auk framangreindra aðila situr stjórnarformaður í nefnd um laun stjórnar en sá aðili verður úr röðum launþega næsta starfsárið.
Gögn fundarins:
Ársreikningur Stapa 2024
Ársskýrsla Stapa 2024
Tillögur fyrir ársfund
Starfskjarastefna