Frí námskeið hjá Akademias skólanum

Við viljum minna á frí námskeið hjá Akademias skólanum.

Um er að ræða stutt og hnitmiðuð fjarnámskeið sem í boði eru í samstarfi við aðildarfélög Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar.  Félagsmenn aðildarfélaga sjóðanna munu fá námskeið að fullu niðurgreidd.

MasterClass námskeið eru rafræn námskeið á netinu en með skráningu fæst aðgangur að námskeiðum í 12 mánuði. Nemendur geta því lært hvar og hvenær sem er en jafnframt farið oft yfir námsefnið á tímabilinu.

Í fyrstu verður hægt að skrá sig á þrjú námskeið sem eru á verði eins og reikningar verða sendir beint á fræðslusjóðina.

Hér má sjá lista yfir MasterClass námskeið Akademias

Fyrir allar nánari upplýsingar og skráningu hafið samband við Ásdísi, asdis@akademias.is

Minnum á að öll Covid átaksverkefni fræðslusjóðanna gilda fram að sumri eða til 1. júní 2021.