Frír aðgangur að námskeiðum

Vegna aðstæðna í íslensku samfélagi vegna covid-19 ákváðu stjórnir Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum upp á þann valkost að sækja námskeið á netinu þeim að kostnaðarlausu í ákveðinn tíma.

Átakið gildir frá 15.mars til og með 31.ágúst 2020 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru innan þessa sama tímaramma eða áskrift keypt innan þess tímaramma.

Allt sem hugurinn girnist, bæði starfsmiðuð námskeið og almenn námskeið, árs áskrift eða stök námskeið. Endilega skoðaðu framboðið og sjáðu hvort eitthvað hittir í mark hjá þér! 

Sjóðirnir hafa gert samninga við eftirtalda aðila:

Hægt er að sjá lista yfir fleiri fræðsluaðila og ráðgjafa í námi fullorðinna á heimasíðu sjóðanna.