Frítt námskeið fyrir trúnaðarmenn - Vinnustaðafundir

Á vef Félagsmálaskólans má finna rafrænt námskeið um vinnustaðafundi sem er ókeypis fyrir trúnaðarmenn. Þar sem námskeiðið er rafrænt geta nemendur tekið það hvenær sem þeim hentar frá kl. 9:00 15. janúar til kl. 16:00 15. febrúar 2024. Námskeiðið felst í fyrirlestri sem nemendur hlusta á og að því loknu þurfa þeir að svara nokkrum spurningum tengdu efninu.

Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn rétt á að halda tvo fundi á ári á launum á sínum vinnustað, klukkutíma í senn. Slíkur fundir verða þó að vera í samráði og með leyfi yfirmanna.  Eining-Iðja hvetur alla trúnaðarmenn félagsins til að skrá sig og taka þátt i þessu námskeiði.

Farið er í kjarasamningsbundinn rétt trúnaðarmanna stéttarfélaga til að boða og halda vinnustaðafundi á vinnustað sínum. Farið er í boðun, undirbúning og skipulag slíkra funda, tilgang þeirra og framkvæmd.

Hafa ber í huga að ákvæði í kjarasamningum sem koma fram í efninu á við félagsmenn í aðildarfélögum innan ASÍ, þar sem ákvæði um vinnustaðafundi í kjarasamningum aðildarfélaga BSRB er með öðrum hætti samkvæmt lögum nr. 94 Um kjarasamninga opinberra starfsmanna gr. 28.

Einnig eru tekin dæmi um hugsanleg málefni slíkra funda til umhugsunar. 

Þar sem námskeiðið er gjaldfrítt, þurfa nemendur þó að setja sína kennitölu sem „greiðanda“ vegna skráningarformsins þó ekki verði innheimt gjald fyrir námskeiðið. 

Nemendur hafa tímann frá 15. janúar til kl. 16:00 15. febrúar 2024 til að ljúka námskeiðinu.