Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa hefur boðað til rafræns fundar fulltrúaráðs á morgun, fimmtudaginn 7. desember kl. 16:30. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn og hafa þeir verið boðaðir á hann.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 3. maí sl. sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
    Guðný Hrund Karlsdóttir stjórnarformaður
  2. Lykilatriði úr rekstri sjóðsins 2023
    Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
  3. Fjárfestingarstefna 2024
    Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
  4. Önnur mál

Boðaðir fulltrúar fá sendan hlekk á fundinn.