Í gær fór fram fundur í trúnaðarráði Einingar-Iðju þar sem m.a. fór fram kosning á fulltrúum félagsins á 39. þing Alþýðusambands Norðurlands og 47. þing Alþýðusambands Íslands.
Í byrjun fundar hélt Bragi V. Bergmann mjög gott erindi þar sem hann fjallaði um krefjandi samskipti.
Í lok fundar fór Tryggvi formaður yfir stöðuna sem upp er komin þar sem verðlagsforsendur kjarasamninga eru brostnar því verðbólga er komin yfir 4,7% viðmiðu kjarasamninga sem eru nú til endurskoðunar. Hann sagði að forsendunefnd kjarasamninga væri starfandi og að niðurstaða þurfi að liggja fyrir í síðasta lagi 8. október nk. Forsendunefndinni ber að leggja mat á framvindu þeirra þátta í efnahagslífinu sem áhrif geta haft á markmið samningsins, leggja formlegt mat á forsendur kjarasamningsins og eftir atvikum semja um viðbrögð við forsendubresti sem treysta forsendur samningsins og stuðla að því að hann haldi gildi sínu. Góðar umræður urðu um málið og var mjög góð samstaða um framhaldið.
Eins og fram kom í byrjun þá fór fram kosning á fundinum á fulltrúum félagsins á tvö þing sem fram fara í haust. Eining-Iðja á rétt á að senda 49 fulltrúa á 39. þing Alþýðusambands Norðurlands sem fram fer á Illugastöðum 24. og 25. september nk. og níu fulltrúa á 47. þing Alþýðusambands Íslands sem haldið verður í Reykjavík dagana 14. til 16. október.