Fyrirtæki beðin um að axla ábyrgð á þróun verðlags - samt kemur hækkun um 6,2%

Ríkið hefur beðið fyrirtæki á markaði um að axla ábyrgð á þróun verðlags og því er miður að sjá bréf…
Ríkið hefur beðið fyrirtæki á markaði um að axla ábyrgð á þróun verðlags og því er miður að sjá bréf sem sent var á skrifstofu félagsins frá viðskiptavini fyrirtækis þar sem tilkynnt var um að allar framleiðsluvörur þess myndu hækka um 6,2% þann 1. maí nk.

Ríki og sveitarfélög hafa ákveðið að gjaldskrár muni ekki hækka á árinu 2019 umfram það sem þegar er komið til framkvæmda og að á árinu 2020 munu gjöld hækka um 2,5% að hámarki en minna ef verðbólga er minni. Ríkið hefur einnig beðið fyrirtæki á markaði um að axla ábyrgð á þróun verðlags og því er miður að sjá bréf sem sent var á skrifstofu félagsins frá viðskiptavini fyrirtækis þar sem tilkynnt var um að allar framleiðsluvörur þess myndu hækka um 6,2% þann 1. maí nk. Taldar eru upp nokkrar ástæður þessara hækkunar, m.a. launahækkanir. Þetta er ekki gott innleg inn í nýgerða kjarasamninga.

Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga felur m.a. í sér að til að stuðla að verðstöðugleika munu gjaldskrár ríkisins ekki hækka á árinu 2019 umfram það sem þegar er komið til framkvæmda. Á árinu 2020 munu gjöld hækka um 2,5% að hámarki en minna ef verðbólga er minni. Brýnt er að fyrirtæki á markaði axli ábyrgð á þróun verðlags og er gengið út frá því að svo verði. Ríkisstjórnin mun einnig beita sér fyrir því að fyrirtæki í ríkiseigu, þ.m.t. orkufyrirtæki, gæti ýtrasta aðhalds við gjaldskrárbreytingar. Þessu hafa sveitarfélögin líka lofað.