Fyrr í vikunni var haldinn fyrsti fundur aðalstjórnar Einingar-Iðju á starfsárinu 2026-2027. Fundurinn fór að þessu sinni fram í sal félagsins á Akureyri og rafrænt í gegnum Teams. Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, nýr meðstjórnandi, var að sitja sinn fyrsta stjórnarfund eftir að hún var kjörin í embættið á aðalfundi félagsins sem fram fór í apríl.
Fjölmörg mál voru á dagskrá fundarins, en alls voru 14 liðir á dagskrá að þessu sinni. M.a. var farið yfir aðalfund félagsins og endurskoðunarskýrslu fyrir síðasta ár, farið var yfir ársfund Stapa og aðalfundi Orlofsbyggða og jafnframt var samþykkt fundaplan starfsársins.
Þá var farið yfir reikninga félagsins miðað við stöðuna sem var fyrr um daginn, en vert er að benda á að stjórnarmenn fá kynningu á stöðu reikninga félagsins á hverjum fundi og því veit stjórnin ávallt hvernig staðan er miðað við fjárhagsáætlun ársins.