Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Nöfn eftirfarandi félagsmanna Einingar-Iðju voru dregin út.
Tveir vinningar að upphæð kr. 150.000. Eitt stk. á hvort félag:
Ingibjörg Kristín Gunnarsdóttir
Tveir vinningar að upphæð kr. 50.000. Eitt stk. á hvort félag:
Eva Sóley Ásgeirsdóttir
Fjórir vinningar að upphæð kr. 40.000. Tvö stk. á hvort félag:
Aðalbjörn Jóhann Þórhallsson
Hugrún Elva Þorgeirsdóttir
20 þátttakendur lentu líka strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, voru í raun dregnir út áður en þeir svöruðu. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni. Um var að ræða vinning að upphæð kr. 15.000. Það getur borgað sig að taka þátt!
Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar þeim fjölmörgu sem gáfu sér tíma til að taka þátt. Félagið mun hafa samband við vinningshafa og láta þá vita.