Georg Páll Skúlason nýr forseti ASÍ

Georg Páll Skúlasonvar var fyrr í morgun kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins. Georg hlaut 56,2% atkvæða en mótframbjóðandi hans, Arnaldur Grétarsson, 43,8%.

Georg tekur við embættinu af Finnbirni A. Hermannssyni, sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Finnbjörn tók við embætti forseta ASÍ í apríl 2023 og gegndi því í um þrjú og hálft ár.

Georg á að baki langan feril í verkalýðs- og kjaramálum en árið 1987 var hann kjörinn formaður Iðnnemasambands Íslands. Hann hefur setið þing ASÍ reglulega frá árinu 2003, átt sæti í miðstjórn sambandsins og verið þingforseti síðustu tveggja þinga.

Frambjóðendurnir tveir ásamt Finnbirni fráfarandi forseta í miðið.

Frambjóðendurnir tveir ásamt Finnbirni fráfarandi forseta í miðið.